Hómópatía
Smáskammtalækningar eiga sér langa sögu. Þetta er 4 ára námslánshæft nám, ef lært
er hérlendis. Hægt er að fá nánari upplýsingar á upplýsingavef Organon, en það er heiti fagfélags hómópata. Hómópatar eru aðilar að Bandalagi íslenskra græðara.
Hvað er hómópatía?
Hómópatía truflar ekki aðrar læknismeðferðir.
Frá tímum forngrikkja, hafa verið uppi tvær kenningar um leiðir til lækninga; en það er leið andstæðna og leið hliðstæðna. Læknisfræðin byggist að mestu á þeirri fyrri, en hómópatían á þeirri seinni, sem sagt, að lækna líkt með líku (similia similibus). Hippokrates, oft kallaður faðir læknisfræðinnar, er sá fyrsti sem vitað er til að notaði leið hliðstæðna, en það var um 450 fyrir Krist. Einnig var hún þekkt fyrir hans daga í alþýðulækningum í Norður Afríku.
Orðið hómópatía er komið úr grísku. Omoeios þýðir líkt, en paþos þýðir þjáning eða sjúkdómur. Þannig þýðir orðið áþekk þjáning, leið hliðsstæðna eða líkt læknar líkt. Hómópatía lítur á einkenni sem viðbrögð líkamans við ójafnvægi lífsorkunnar sem valdið geta ýmsum veikindum líkamlegum og andlegum. Hómópatía er náttúruleg aðferð til að örva lífsorku líkamans til heilbrigðis. Talað er um heildræna meðferð þar sem hómópatísk aðferð meðhöndlar manneskjuna sem heild en ekki sem sjúkdómstilfelli eða til að meðhöndla sjúkdóminn einann og sér.
Smáskammtalækningar nútímans byggjast upp á rannsóknum S. Hahnemann (1755-1843) sem var þýskur læknir og efnafræðingur. Hann gerði allar tilraunir á sjálfum sér, fjölskyldu sinni, þeim nemendum sínum sem vildu taka þátt í tilraununum og fjölda annarra sjálfboðaliða. Prófanir voru ekki gerðar á dýrum, þar sem dýr geta ekki útskýrt líðan eða einkenni.
Sumar jurtir og önnur efni geta verið mjög eitruð og haft miklar aukaverkanir. Hahnemann þróaði tækni sem er kölluð kraftefliskenningin. Kraftefling eða að pótensera efnið er framkvæmt af mikilli nákvæmni, með sérstakri aðferð, þannig að efni sem notuð eru í hómópatískar remedíur eru orðin að skaðlausum örefnum. Þar af leiðandi hafa hómópatalyf engar aukaverkanir sem geta sljóvgað einstaklinginn eða truflað ónæmiskerfið.
Síðustu 200 árin hefur verið gerður fjöldi rannsókna á hómópatíu, bæði á rannsóknarstofum, klínískar rannsóknir og svokallaðar double-blind cross-over rannsóknir. Rannsóknir voru gerðar á fjölda fólks þar sem skipulagðar rannsóknir voru gerðar, með því að gefa sumum virkar remedíur, öðrum hefðbundin lyf og enn öðrum lyfleysu.
Víða eru rekin hómópatísk sjúkrahús, eða jafnvel hómópatískar deildir innan hefðbundinna sjúkrahúsa. Og í dag er Elísabet Englandsdrottning velunnari hins þekkta Royal London Homeopathic Hospital.
Um miðja nítjándu öld, var farið að stunda smáskammtalækningar á Íslandi, en þær höfðu verið stundaðar um hálfrar aldar skeið í Evrópu og þaðan borist til Ameríku. Og um aldamótin 1900 voru hér á Íslandi fleiri hómópatar en læknar. 24. febrúar 1922 kom út bók um hómópatíu, eftir Margréti Jónsdóttur, sem var mikið notuð víða um land.
Ábyrgð okkar á eigin heilsu !
Nauðsynlegt er að við tökum sjálf ábyrgð á okkar eigin líkama og heilsu. Góð heilsa felst í líkamlegu og andlegu jafnvægi. Ef eitthvað fer úrskeiðis eigum við margra úrkosta völ. Hómópatían er sérlega vel til þess fallin að aðstoða okkur við að endurheimta heilsuna og viðhalda henni. En fyrst og fremst er ábyrgðin okkar.
Hvernig virkar hómópatía ?
Grunnefni sem notuð eru í hómópatíu eru um fimm þúsund talsins úr jurta, steina og dýraríkinu. Fyrir hvert afbrigði er til remedía (hómópatalyf), hver með sína innihaldslýsingu á flestum þeim einkennum sem tengjast viðkomandi remedíu, bæði líkamlega og andlega og í hvaða tilgangi hún er notuð. Einkenni eru vísbending um það ójafnvægi sem dylst bakvið hver veikindi eða óþægindi hvort sem um er að ræða andlegt eða líkamlegt.
Hómópatía er bæði notuð varðandi bráðatilfelli jafnt og krónísk tilfelli. Þetta er afar milt meðferðarform bæði fyrir börn og fullorðna. Hún hentar fólki á öllum aldri og getur aðstoðað fólk við fjöldann allan af vandamálum, samhliða þvi að hvetja fólk til að taka ábyrgð á eigin heilsu. Hómópatía getur haft styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi líkamans og hjálpað til við að komast fyrir endurteknar sýkingar. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir, að þetta hefur ekki áhrif á meðferðir eða lyf hefðbundinna læknismeðferða.
Leiðbeiningar um notkun
Smáskammtar eru yfirleitt í litlum sykurtöflum (sem látnar eru undir tunguna og látnar bráðna), vökva eða öðru formi. Viðeigandi ráðleggingar og val á meðferð fer algerlega eftir hverjum einstaklingi fyrir sig, því hver einstaklingur er sjálfstæð heild með sínum eigin einkennum. Ef hómópati tekur það ekki sérstaklega fram að taka skuli aðskilið má taka remedíur á sama tíma.
Ekki skal geyma remedíur í sól, ekki nálægt sterkri lykt, alls ekki nálægt GSM eða öðrum tækjum sem senda frá sér orkutíðnir. Ekki skal snerta töflurnar með höndunum, heldur nota eitthvað áhald. Æskilegt er að neyta ekki fæðu eða drykkjar 10 - 15 mín. áður eða á eftir.
Hómópati tekur ekki fram fyrir hendur hafðbundinna lækna.
Hómópatía truflar ekki hefðbundnar læknismeðferðir.
- Hómópatía
- C.O.R.E. Inergetix
- Fæðuóþolsmælingar
- Tímapantanir
- --------------------------
- Sigrún Árnadóttir
- Hafðu samband