Hiti
| Atriðaskrá greina |
|---|
| Hiti |
| Mismunandi hitamæling |
| Heimilisráð |
| Hefðbundnar meðferðir |
| Hómópatía |
| Allar síður |
Síða 1 af 5
Sótthiti er óeðlilega hár líkamshiti. Hiti er ekki sjúkdómur heldur afleiðing og í sumum tilfellum eina einkenni um að
einhverskonar sýking á sér stað. Þetta er eðlilegt ferli og ef hitinn er ekki óeðlilega hár þá getur hann verið gagnlegt fyrirbæri. Það er ekki aðeins til að vara mann við að sýking eigi sér stað heldur gefur það til kynna að varnir líkamans séu virkar. Hiti getur unnið með einstaklingnum gegn sýkingum til að öðlast bata á ný og er oft mikilvægur þáttur í vörn ónæmiskerfisins gegn veirusýkingum. En með óeðlilega háan hita eða með hita í kjölfar alvarlegs sjúkdóms skal sýna aðgát og þá hafa samband við lækni. Ef líkamshitinn er 37,5°C eða hærri getur það bent til sýkingar, en slík hækkun hita getur líka stafað af líkamlegri áreynslu. Best er því að mæla sig að morgni áður en farið er að hreyfa sig. Ungbörn hafa tilhneigingu til að hafa örlítið hærri hita á kvöldin og er það mjög eðlilegt og ekkert til að hafa áhyggjur af.
Fyrri - Næsta >>
Fróðleikur
Leita