Ógrinni af áhugaverðu efni vekur áhuga manns. Margt af þessu efni langar manni síðan að deila með öðrum.
Við vorum 2 hómópatar sem ákváðum að taka okkur saman um að senda út á tölvutæku fromi einn pistil í mánuði yfir vetratímann.
Munu pistlarnir verða birtir á þessu svæði þannig að þeir sem áhuga hafa á, geta skoðað þá þar. Þeir fjalla, eins og sjá má, um margvísleg málefni sem hafa af einhverjum orsökum, vakið athygli okkar á hverjum tíma. Vonum við að þeir verði til þess að auka skilning og fróðleik á Hómópatíu og heilsubót almennt.
Sigríður Bjarnadóttir sími 893-4434 og Sigrún Árnadóttir sími 863-6848
Bólur
Bólur eru einkenni bólguvaldandi sýkingar í hársekkjum og fitukirtlum húðarinnar. Bólur geta verið ótrúlega breytilegar og geta komið fram hvar sem er á líkamanum þar sem hár vex, en aðallega í andliti á baki og bringu. Þær geta verið frá því að vera eins og örlítið upphleypt útbrot, sem hjaðna aftur á stuttum tíma, allt að bólgnum, djúpstæðum, graftarkýlum með verkjum.
Þegar sýkingin er svona utarlega í húðinni mætti ætla að með því að gæta hreinlætis væri hægt að fyrirbyggja bólur, en það er ekki svo einfalt. Orsakir geta verið nokkrar og lítt sjáanlegar og því getur verið erfitt að meðhöndla vandamálið.
Aðal orsakir eru: Hormónatengdar bólur eru algengar meðal unglinga á kynþroskaskeiðinu þegar starfsemi fitukirtlanna í húðinni eykst. Sérstök hormón sem kölluð eru andogen valda þessum breytingum í húðinni. Bólurnar eru jafn algengar hjá stúlkum og drengjum. Einnig hafa hormónar áhrif á húð kvenna tengt blæðingum eða meðgöngu, þegar röskun er á hormónakerfinu.
Meltingartengdar bólur sem tengjast óreglulegri meltingu, eða viðkvæmni í þarmaflóru. 
Gott er að drekka vel af vatni. Það er mjög hreinsandi. Einnig gott að drekka epla og gulrótarsafa á fastandi maga þar sem það styrkir og hreinsar lifrina, en hún hefur það stóra hlutverk að hreinsa út úr líkamanum ýmis óæskileg efni.
Meltingartengdar bólur sem tengjast óreglulegri meltingu, eða viðkvæmni í þarmaflóru. Ef við frásogum úr fæðunni inn í blóðrásina, efni sem líkaminn telur óæskileg, reynir hann að losa sig við þau á sem nærtækastan hátt, en það er út um húðina.
Fæðuval hefur því mikið að segja og ýmsar fæðutegundir geta ýtt undir vandamálið. Forðast skal sykur, súkkulaði, sælgæti, kökur, skyndibitafæði, bjór, áfengi, hveiti- og heilhveitibrauð, hnetur, gosdrykki, steiktan mat og mikið kryddaðan.
Húðin þarfnast mikils hreinlætis og æskilegt að þvo sér bæði kvölds og morgna til að reyna að halda bakteríuflórunni í skefjum. Skola skal hreinsikrem eða sápu vel í burtu eftir þvott og reyna að fá góða heilsusápu, sem fer vel með húðina.
Gæta skal vel að snyrtivörur séu svo heilnæmar sem hægt er, og innihaldi ekki aukaefni.
Erfitt er oft að meðhöndla þetta vandamál, sérstaklega þegar ástandið hefur verið viðvarandi í lengri tíma. Hormónabreytingar kvenna, geta einnig gert ástandið erfiðara viðfangs.
Varast skal að kreista bólur en þeir sem vilja endilega gera það, munið að hita andlitið áður en þið kreistið, annað hvort með heitri gufu eða heitum bakstri. Hættan á því að kreista bólur er að það getur skilið eftir sig ör sem verða sýnileg áfram þótt bólurnar fari.
---------------------------------

Remedíur sem gætu gagnast við bólum
og helstu einkenni.
Þetta eru aðeins helstu remedíurnar, en fjölmargar aðrar remedíur geta komið til hjálpar og því gott að leita til hómópata sem gæti aðstoðað við að finna réttu remedíuna og styrkleika.
Antimonium crudum = Litlar rauðar bólur á andlitinu og á hægri öxl. Bólurnar eru aumar viðkomu. Bólur hjá einstaklingum með meltingarvandamál, eru þyrstir, með hvíta skán á tungunni. Ástand verra hjá drykkjumönnum.
Arsenicum = Þrálát tilfelli og geta verið smitandi. Húðin er þurr, hrjúf og eins og skítug. Mest áberandi á andliti og útlimum.
Aurum metallicum = Gelgjubólur. Rauðar bólur á andlitinu. Einstaklingur hefur tilhneigingu til þunglyndis eða jafnvel sjálfsmorðshugleiðingar.
Calcarea silicata = Margar litlar bólur án graftrar, í hárssverði. Blæðir úr þeim ef klórað. Margar bólur og graftarvilsa. Bólukennt exem. Óheilbrigð húð sem grær illa.
Carbo animalis = Rósaroðabólur. Gelgjubólur. Bólur á andliti og enni.
Carboneum sulcuratum = Kýlasótt. Blöðrur sem innihalda gulleitan vökva, sem myndar þykkt gulleitt hrúður. Mikill kláði.
Carbo vegetabilis = Rósaroðabólur. Gelgjubólur. Eru aftan á hálsi, andliti, enni og höku. Rauðar bólur, sviðaverkur og bólga með graftrarvilsu. Ungt fólk með meltingarvandamál. Ástand verra við að borða fitu eða svínakjöt. Einstaklingar með sogæðabólgu.
Causticum = Rósaroðabólur. Gelgjubólur. Útbrot á andliti, enni. Finnst frekar en sést. Bólukennd útbrot milli augnanna og ofan við nefið.
Hepar sulfuris = Rósaroðabólur. Gelgjubólur. Verkjalausar bólur í hnakkagróf og aftan á hálsi, enni og höku. Skorpukenndar bólur á andliti hjá ungu fólki. Gulleit húð og grefur auðveldlega í sárum. Flýtir fyrir að grafi út. Ígerð í kirtlum, hósti með hryglum fyrir brjósti en engan uppgang.
Kali bromatum = Gelgjubólur og blárauðar graftarbólur. Á kinnum, andliti og enni. Litlar bólur með kláða.
Lach = Bólur umhverfis sár.
Nux vomica = Gelgjubólur. Meltingartruflun með harðlífi. Lítil daunill sár í munni og koki. Bólur á enni. Einstaklingur sem drekkur mikið kaffi og líkjöra, reykir eða hefur verið á lyfjum. Ástand verra hjá kyrrsetufólk.
Rhus toxicodendron = Rósaroðabólur. Graftarbólur. Bólur sem ná djúpt í húðina, eru viðkvæmar og staðsettar á rasskinnum og nálægt rófubeini. Hlaupabóla. Ástand verra hjá drykkjumönnum, kynfíklum, gigtarsjúklingum. Ástand verra við að hvíla sig. Alltaf Þreyttur.
Sepia = Gelgjubólur. Bólur á enni og höku. Ástand verra á meðgöngu eða á blæðingum. Bólur á munaðarhól, fótleggjum og fellingum liðamóta. Húð óhrein, gulleit og hrúðruð. Afleiðing bólusetningar eða sjálfsfróunar.
Silicea = Gelgjubólur. Grefur lengi í bólum. Bólur springa milli fingra. Bólur á enni. Þrálát tilfelli hjá kirtlaveiku fólki. Einstaklingur með daunillan fótasvita eða hægðatregðu. Ástand verra við að drekka vín.
Sulphur = Gelgjubólur með svörtum svitaholum á andliti. Rauðar bólur með kláða á nefi, vörum, umhverfis höku, enni og á framhandleggjum. Kýli. Þrálátt einkenni.
Eins og áður var sagt er þetta yfirlit yfir nokkrar helstu remedíurnar við bóluvandamálum,
en alls ekki allar.
Bestu kveðjur
Sigrún Árnadóttir og Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.