• Þjónusta
    • Hómópatía
    • C.O.R.E. Inergetix
    • Fæðuóþol
    • Tímapantanir
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
    • Vítamín og bætiefni
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tímapantanir
    • Tenglar
    • Heilsustöðin Fold
  • English Material
  • Hafðu samband
Increase Font Size Reset Font Size Decrease Font Size

Eplaedik

Epli innihalda margvísleg næringarefni sem eru meðal annars vítamín, steinefni, kolvetni og ensím (og þar á meðal pektín).  Pektín er ensím sem nýtist við niðurbrot próteina í meltingarvegi mannanna.  Pektín myndast í meltingarvegi og virkni þess stjórnast af sýrustigi meltingarfæra. 

Eplaedik er náttúrulegt efni sem unnið er úr ferskum, þroskuðum eplum sem eru látin gerjast.  Úr því fæst eplacider sem er látinn gerjast aðra umferð og verður þá til eplaedik.  Það inniheldur öll þau næringarefni sem eplið sjálft býr yfir en við gerjunina myndast  fleiri góð efni.  Til dæmis eykst magn ensíma og góðra gerla en það er mikilvægt fyrir uppbyggingu heilbrigðrar þarmaflóru.

Eplaedik hefur verið þekkt og notað í þúsundir ára eða allt frá tímum forn Egypta.  Sagt er að Hipocrates sem kallaður er faðir læknisfræðinnar, hafi meðhöndlað sjúklinga með eplaediki vegna hreinsandi, bakteríudrepandi og læknandi áhrifa þess.  Það inniheldur ekki þungmálma né önnur eiturefni.

Það er notað við ýmsum heilsufarsvandamálum, en það er alls ekki sama hvers konar eplaedik er notað.  Best er að hafa það lífrænt og helst ósíað án viðbættra kemískra- eða rotvarnarefna.  Má jafnvel vera dálítið grugg í botninum, en það er merki þess að edikið er ennþá fullt af lifandi og heilsubætandi gerlum.  Síað, unnið og ljóst eplaedik býr ekki yfir þeim eiginleikum sem lífræna, óunna edikið býr yfir.

Þar sem ónæmiskerfið er að stórum hluta í meltingarkerfinu er mikilvægt að halda því í jafnvægi svo sem kostur er.  Ef þarmaflóran er í ójafnvægi kallar það á magavandamál sem veldur svo lélegu ónæmiskerfi.  Með lélegu meltingar- og ónæmiskerfi koma fram mörg önnur vandamál eins og sveppasýking, höfuðverkur, munnangur, aukin slímmyndun,  ofnæmi, húðvandamál, vefjagigt, liðagigt, síþreyta, andlegt ójafnvægi, meiri viðkvæmni fyrir pestum og lengi mætti telja.  Ef ekkert er að gert getur það valdið enn alvarlegri sjúkdómum.

Þar sem eplaedik inniheldur lifandi góða gerla stuðlar það að betri þarmaflóru sem veldur betri og örari meltingu.  Það er því einföld og góð lausn fyrir þá sem vilja stuðla að bættri heilsu og forðast ýmis konar heilsufarsvandamál.  Það er ódýrt og auðvelt að nálgast það en muna skal að kaupa aðeins gott lífrænt eplaedik. 

Eplaedik er mjög súrt á bragðið en um leið og það er komið inn fyrir varirnar verður það basískt eins og gerist með sítrónur.   Því er það mjög gott til að jafna sýrustig líkamans

Notkun eplaediks:

Góð tegund er til dæmis  Demeter Eplaedikið frá Yggdrasil, sem er í 1 líters glerflöskum og á að fást í flestum heilsuhornum landsins

Sýrustig líkamans er mjög umtalað vandamál.  Eplaedikið hefur þann eiginleika að gera líkamann basískari.  Það virkar vel gegn brjóstsviða, bjúgsöfnun og ýmsum húðvandamálum, en þarf að nota í réttu magni og á réttan hátt. 

Eplaedik er mjög súrt þó það virki basískt á líkamann og húð.  Ef húðin er mjög viðkvæm þá má blanda eplaedikið með vatni eða hreinni ólífuolíu.  Ekki leggja eplaedik óblandað við augu vegna þess að það getur verið óþægilegt þó ekki sé hætta á blindu né því um líkt. Ef um augnsýkingu er að ræða er í lagi að leggja blandaðan bakstur við (vatn og eplaedik) en fara að öllu með gát.

Meltingin getur orðið betri þar sem eplaedik virkar sem náttúrulegur acidophilus Mælt er með því að blanda 2-3 matskeiðum í volgt vatn.  Blanda í það 1 teskeið af lífrænu hunangi og drukkið tvisvar á dag.  Þetta bragðast eins og gott te.  Ef ástandið er slæmt má auka skammtinn í 4 matskeiðar þrisvar sinnum á dag en minnka aftur þegar ástandið batnar. 

Eplaedik getur aðstoðað vegna megrunar með því að örfa meltinguna, er þá sett 1 msk., af eplaediki í eitt glas af vatni og drukkið alltaf fyrir mat.

Talið vera vatnslosandi með því að blanda 2-3 matskeiðum í volgt vatn.  Blanda má í það 1 teskeið af lífrænu hunangi og drukkið til dæmis á morgnana en má vera tvisvar á dag ef ástandið er slæmt.   

Brjóstsviði og vélindabólgur.  Safi úr einni ferskri sítrónu í glas og fylla upp með volgu vatni.  Drukkið á hverjum morgni fyrir morgunmat.   15 mínútum fyrir hádegis- og kvöldmat skal drukkið 4 matskeiðar eplaedik í glasi fylltu upp með volgu vatni.  Má setja lífrænt hunang út í til að bæta bragðið.  Einkenni gætu farið á um 2 vikum, en halda skal áfram í nokkra mánuði til að ná bata. 

Eplaedik hefur sýkla- og bólgueyðandi áhrif án aukaverkana.  

Ef um gigt er að ræða með bólgna verkjaða liði gæti hjálpað að setja 2-3 matskeiðar eplaedik, 1-2 matskeiðar laxerolíu og 1-2 matskeiðar sjávarsalt út í baðið og liggja lengi.

Á útvortis bólgur má nota eplaedik óblandað í bakstra.  Það má bera óblandað eplaedik á sár, bólgur, marbletti og fl.  Gott til að leggja við mar eða tognun ökkla eða annara liðamóta.   Klútur er vættur í eplaediki og lagður beint á marið eða bólgna svæðið og svo vafið með klísturplasti (vitavrap) svo klúturinn þorni ekki. Haft á í 1-2 klst. Endurtaka svo oft sem þarf. Ef sár er á húð þarf að þekja sárið með vasalíni/júgursmyrsl fyrst. 

Sveppaeyðandi, bæði fyrir útvortis (óblandað) og innvortis (drukkið sem te) sveppasýkingar, með því að styrkja þarmaflóruna sem verður þá betur umkomin að halda óæskilegum bakteríum og sveppum í skefjum.  Einnig er gott vegna fótasvepps að blanda eplaediki út í vatnsbala og fara í fótabað.

Húðvandamál skapast oft af því að þarmaflóran er ekki í jafnvægi, en eplaedik er hreinsandi og styrkjandi. 
Öflugt til að hreinsa líkamann.  Það brýtur meðal annars niður slímmyndun og styrkir virkni líffæra eins og þvagblöðru, lifur og nýru. 

 

 
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
  • Vítamín og bætiefni
Leita
Nýjustu innlegg
  • Túrverkir / Tíðaþrautir
  • Breytingaskeið / Hitakóf
  • Sprungnar hendur og fingurgómar
  • Hunang og kanill.
  • Góð heilsa.
  • Hægðatregða / Latur ristill
  • Eplaedik
  • Bólur
  • ESSIAC / Tea of Life
  • Frunsur / áblástur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Webdesign Tirol designed by pc-didi.