• Þjónusta
    • Hómópatía
    • C.O.R.E. Inergetix
    • Fæðuóþol
    • Tímapantanir
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
    • Vítamín og bætiefni
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tímapantanir
    • Tenglar
    • Heilsustöðin Fold
  • English Material
  • Hafðu samband
Increase Font Size Reset Font Size Decrease Font Size

Góð heilsa.

Atriðaskrá greina
Góð heilsa.
Líðan barna og unglinga
óeðlilegar aðstæður
Afleiðingar
Hómópatía
Allar síður
Síða 1 af 5

Orðið heilsa merkir að vera heill.  En hvað er að vera heill ?  Það er samspil margra þátta eins og líkamleg heilsa, tilfinningaleg heilsa, andleg heilsa, hugarfarsleg heilsa og næmleiki.  Allir þessir þættir eru jafn mikilvægir og geta haft mikil áhrif á hvorn annan.

Sem dæmi þá er hver einstaklingur eins og púsluspil þar sem hvert stykki skiptir jafn miklu máli til þess að myndin verði heil.   Ekkert púsluspil er eins og þarf því að huga vel að hverjum þætti hvers einstaklings af alúð.

Líkamleg heilsa:   Líkamleg heilsa er okkur tamt hugtak sem við höfum ekki tengt öðrum hugtökum.  Bara að vera frískur.  En það er ekki alveg svo einfalt því samspil allra þáttanna getur haft áhrif á líkamlegu heilsuna.  Varðandi líkamlega heilsu, þurfum við sjálf að bera ábyrgð á hvað við gerum til að stuðla að sem bestum grunni til að byggja á.  Við þörfnumst ferskrar og næringarríkrar fæðu.  Nóg af heilnæmum vökva eins og hreinu vatni.  Góður og nærandi svefn.  Geta náð slökun andlega sem líkamlega.  Hreyfing er mjög nauðsynleg.  Heilbrigt viðhorf gagnvart kynlífi getur einnig haft mikið að segja.   Forðast skal unna og tilbúna fæðu, sætuefna, ofnotkun lyfja, alkahóls, tóbaks og koffeins því það getur dregið úr líkamlegum þrótti.

Tilfinningaleg heilsa:   Á síðari árum er farið að viðurkenna í mun meira mæli, mikilvægi tilfinninga á líkamlega heilsu manna.  Við þurfum að hafa jákvæðan tilgang í lífinu.  Við þurfum gott tilfinningalegt jafnvægi.  Þörfnumst stuðnings, trausts og kærleika fjölskyldu og vina.  Við þurfum að geta tjáð tilfinningar okkar.  Þurfum að vera meðvituð um hvað eru neikvæðar og hvað eru jákvæðar tilfinningar og leyfa okkur að grípa sjálf inn í ferlið.  Tilfinningalegt ójafnvægi eða áföll geta haft veruleg áhrif á líkamlega heilsu eins og sem dæmi veikindi eftir atvinnumissi, makamissi, sambandsslit, meðvirkni eða fjölskylduvandamál.

Andleg heilsa:   Andleg heilsa og andlegt jafnvægi byggir oft að hafa jákvæðan tilgang í lífinu.  Finnast sem tilheyra í lífinu, þekkja muninn á réttu og röngu og hafa löngun til að láta gott af sér leiða.  Öfgaleysi og hófsemi á öllum sviðum styður andlega heilsu.  Tilgangsleysi og ójafnvægi andlegrar heilsu getur leitt til þunglyndis, sem aftur getur haft  veruleg áhrif á aðra heilsufarslega þætti.  

Hugarfarsleg heilsa:   Jákvætt hugarfar og viðhorf hefur mun meira að segja en margir gera sér grein fyrir.  Utanaðkomandi áhrif geta haft mikil áhrif á hugarfarið eins og ef við leifum stöðugum neikvæðum hugsunum að magnast innra með okkur.  Ef við erum stöðugt að horfa á neikvæðar myndir eða að vera í ofbeldisfullum tölvuleikjum.  Ef við lifum stöðugt við neikvæðar hugsanir þá getur hugurinn orðið sjúkur og haft veruleg áhrif á líkamlega-, tilfinningalega og andlega heilsu.  Við þurfum að þekkja og skilgreina þessar hugsanir til að geta agað hugann til að efla jákvæðar hugsanir, rökvísi, minni, jákvætt ímyndunarafl til að geta hreinsað hugann af áhyggjum og kvíða.  Gott er að einbeita sér að jákvæðum hugsunum, njóta ánægjulegra stunda, hlusta á fallega tónlist, lesa góðar bækur og hafa í huga uppbyggjandi lífsviðhorf.

Næmleiki eða ónæmiskerfi:   Þetta er hugtak sem notað er yfir hve móttækileg við erum gagnvart kvillum og sjúkdómum.  Þetta getur verið mismunandi milli einstaklinga og fjölskyldna þar sem hvert okkar býr yfir mismunandi grunni og hver hefur sína veiku hlekki.  Sumir hafa orðið fyrir áföllum, slysi eða alvarlegum sjúkdómum sem á einhvern hátt hefur haft áhrif á heilsufar okkar í heild.  Þegar jafnvægi er á heilsu okkar í heild, er líklegra að við fáum ekki kvef, flensur eða aðrar umgangspestir.  Eðlilegt er að veikjast 1-2 sinnum á ári og veikindi eru ekki alltaf neikvæð þar sem ónæmiskerfið styrkist við áreiti

Okkur er nauðsynlegt að læra að hlusta á líkamann og gera okkur grein fyrir hvað hann er að segja okkur.  Það er ekki alltaf hrein tilviljun, þegar við veikjumst og hvernig við veikjumst.  Líkaminn er oft á tíðum að gefa okkur skilaboð um að slaka á tilfinningalegu eða líkamlegu álagi, hvíla okkur og vinna okkur út úr aðstæðum.  Stundum veikjumst við eftir áföll eða slæmar fréttir, vonbrigði eða sorg þar sem orka líkamans raskast og mótstaða hans minnkar.  Einstaklingar sem eiga erfitt með að tjá tilfinningar eru jafnvel gjarnir á að fá frekar hálsbólgu en aðrir. 


Fyrri - Næsta >>

 
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
  • Vítamín og bætiefni
Leita
Nýjustu innlegg
  • Túrverkir / Tíðaþrautir
  • Breytingaskeið / Hitakóf
  • Sprungnar hendur og fingurgómar
  • Hunang og kanill.
  • Góð heilsa.
  • Hægðatregða / Latur ristill
  • Eplaedik
  • Bólur
  • ESSIAC / Tea of Life
  • Frunsur / áblástur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Webdesign Tirol designed by pc-didi.