Hunang og kanill.
Upplýsingarnar eru án allrar ábyrgðar en ekki væri verra ef það gæti gert einhverjum gagn.
Hunang:
Hrátt hunang inniheldur glúkósa og frúktósa, sem eru einsykrur. Það inniheldur einnig A, B, C, D, E og K vítamín ásamt
beta-carotíni. Steinefni eru líka í hunangi eins og til dæmis magnesíum, súlfúr, forfór, járn, kalk, klór, potassíum og iodine. Ekki má gleyma að það inniheldur lifandi ensím sem eru nauðsynleg fyrir líkamsstarfsemina.
Hunang er framleitt í flestum löndum heims og í áraraðir hefur það verið talið áhrifamikið, heilsubætandi og gott við ýmsum kvillum og sjúkdómum. Ekki er gott að nota það í eldamennsku þar sem góðu ensímin sem hjálpa við niðurbrot hunangsins, skemmast ef hunangið er hitað yfir 40 gráður. Te því látið kólna aðeins áður en hunangið er sett út í.
Hunang hefur góð áhrif á alla líkamsstarfsemi hvort sem er til inntöku eða sem smyrsl á húðina. Það hefur reynst vel á exem eða sem mýkjandi á psoriasis. Athuga skal að nota eingöngu kaldpressað lífrænt ræktað hunang. Það er græðandi, sótthreinsandi og bakteríudrepandi. Sannað hefur verið að bakteríur lifa ekki í hráu hunangi.
Þrátt fyrir það er talið að í hunangi geti leynst gró frá bakteríunni Clostridium Botulinum. Þetta eru bakteríugró sem finna æskileg skilyrði til að lifna við í þörmum ungbarna undir eins árs aldri og geta valdið lömun og jafnvel dauða. Er því ekki ráðlegt að gefa ungum börnum hunang á snuðið. Eftir það þroskast þarmaflóran þannig að skilyrði fyrir gróin eru ekki til staðar.
Á tímum Rómverja og Grikkja var hunang notað sem sætuefni því sykur þekktist ekki á þeim tímum. Þá notuðu Rómverskir læknar hunangið sem svefnmeðal og víða var hunang notað við húðvandamálum, sárum og meiðslum. Forn-Egyptar notuðu hunang fyrir opin skár, skurði, bruna og jafnvel við skýi á auga.
Þýskur læknir bjó til blöndu af hunangi og þorskalýsi í fyrri heimsstyrjöldinni sem hann notaði á meiðsli og skotsár hermanna. Söngvarar og þeir sem þurfa að tala mikið hafa notað hunang til að mýkja hálsinn og raddböndin.
Það er talið án allra aukaverkana og hafa vísindamenn í Kanada einnig sérstaklega rannsakað áhrif hunangs og kanils saman.
Kanill:
Kanill hefur verið þekktur frá fornöld og jafnvel tilgreindur í gamla testamentinu. Hann er unninn úr trjáberki sem er barinn í
þunnar flögur (0,5 mm), vafinn upp í rúllur og þurrkaður. Hann þornar fljótt og er síðan skorinn í 5-10 cm langa búta sem við þekkjum sem kanilstangir.
Kanilinn er hægt að nota út á mat, blandaðan hunangi, drekka hann í tei og nota hann í olíum.
Sænskar rannsóknir hafa sýnt fram á marktæka minnkun blóðsykurs sem rennir stoðum undir þær rannsóknir sem sýna að kanill getur verið góður í meðferð við sykursýki 2. Í honum eru efni sem líkja eftir insúlíni. Komið í ljós að kanillinn tuttugufaldar efnaskipti glúkósa og hann einnig minnkar hann slæma kólesterólið í blóðinu. Einnig er kanill sérstaklega talinn hafa mikil áhrif á kirtla.
Kanill bætir meltingu, dregur úr gasmyndun í meltingarvegi, hefur áhrif gegn myndun magasára og vinnur á móti sveppasýkingu. Hann dregur úr miklum tíðarblæðingum og vinnur gegn hjartaáföllum. Rannsóknir hafa sýnt að efni í kanil geti stöðvað vöxt krabbameinsfruma í lifur.
Hunang og kanill:
Hér á eftir verða talin upp nokkur atriði sem nefnd hafa verið þar sem hunang og kanill hafa verið talin geta bætt vellíðan og heilsu fólks.
Langlífi.
Te með hunangi og kanil sem er drukkið reglulega seinkar öldrun. Setjið fjórar matskeiðar af hunangi og eina matskeið af kanil í þrjá bolla af vatni og sjóðið eins og væri te. Drekkið ¼ bolla þrisvar til fjórum sinnum á dag. Það hefur góð áhrif á húðina og dregur úr öldrun.
Þreyta.
Dr. Milton hefur gert rannsóknir á áhrif hunangs á fólk og segir að hálf matskeið af hunangi og 1 teskeið af kanil hrært út í glas af vatni og drukkið bæði að morgni og aftur síðdegis auki þrek líkamans til muna á einni viku. Gamalt fólk sem borða daglega hunang og kanil verða miklu meira vakandi.
Kvef.
Ein matskeið af volgu hunangi ásamt einum fjórða matskeið af kanil, tekið í þrjá daga, er talið geta hjálpað til við að komast yfir kvef og krónískan hósta.
Inflúensa.
Vísindamenn á Spáni hafa sannað að hunang inniheldur náttúruleg efni sem vinnur á flensuveirum og hjálpar til við að verja fólk gegn flensusjúkdómum.
Blöðrubólga.
Talið að hægt sé að eyða sýklum úr þvagblöðru með því að hræra tvær matskeiðar af hunangi og eina matskeið af kanil í glas af volgu vatni og drekkið þetta. Ekki sakar að bæta út í 3 matskeiðar af trönuberjasafa.
Meltingartruflanir.
Hálf teskeið af kanil ásamt tveim matskeiðar af hunangi sem borðað er á undan mat getur dregið úr sýrumyndun í maga og hjálpað meltingu.
Magaverkir.
Talið að dagleg neysla hunangs og kanils geti grætt magasár og dregið úr magaverkjum.
Vindgangur.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að inntaka af hunangi og kanil dregur úr vindgangi.
Húðsýking.
Hunang og kanill til helminga smurt á sýkta bletti getur það hjálpað við laga útbrot og allskonar húðsjúkdómar.
Bólur.
Hrært saman Þrjár matskeiðar af hunangi og ein teskeið af kanil og borið daglega fyrir svefn á bólur og þvo af næsta morgun með volgu vatni. Ef þetta er gert daglega í tvær vikur geta bólur horfið frá rótum.
Ónæmiskerfið.
Talið að dagleg inntaka af tveim matskeiðum af hunangi og tveim teskeiðum af kanil styrki ónæmiskerfið. Vísindamenn hafa sannað að í hunangi eru mörg vítamín og járn í miklu magni. Notkun að staðaldri styrkir hvítu blóðkornin til þess að vinna á móti bakteríum.
Liðagigt.
Liðagigtarsjúklingar ættu að taka inn kvölds og morgna, einn bolla af heitu vatni með tvær matskeiðar af hunangi og eina teskeið af kanil. Ef þetta er tekið inn reglulega getur jafnvel krónísk liðagigt læknast. Rannsóknir við Kaupmannahafnarháskóla sýna, að þegar læknar létu sjúklinga taka inn eina matskeið af hunangi og hálfa teskeið af kanil fyrir morgunverð, fundu þeir út, að á einni vikur höfðu 73 sjúklingar af 200 verið læknaðir af verkjum, og á einum mánuði höfðu næstum allir sjúklingar sem gátu ekki gengið vegna liðagigtar, náð að ganga án verkja.
Kólesteról.
Talið er að tvær matskeiðar af hunangi og þrjár teskeiðar af kanil hrært út í hálfan líter af tevatni, geti lækkað kólesteról í blóðinu á ótrúlega skömmum tíma. Gott er að drekka það þrisvar á dag. Einnig talið að dagleg neysla með mat af lífrænu hunangi dragi úr kólesteról sjúkdómum.
Hjartasjúkdómar.
Hrærið saman tveim matskeiðum af hunangi og þrem teskeiðum af kanil og notið á brauð í saðinn fyrir Jelly eða sultu og borðið reglulega í morgunverð. Það dregur úr kolesteroli í slagæðum og dregur úr hættu á hjartaáfalli. Þeir sem þegar hafa fengið hjartaáfall geta með þessu dregið úr því að fá aftur áfall. Regluleg notkun á hunangs- og kanilblöndu dregur úr hættu á því að missa andann og styrkir hjartað. Í Ameríku og Kanada hafa mörg sjúkraskýli með þessu læknað sjúklinga með góðum árangri og staðreyndin er sú að eftir því sem aldurinn færist yfir þá tapa æðarnar sveigjanleika sínum og hætta verður á æðastíflun. Hunang og kanill endurlífga slagæðar og blóðæðar.
Yfirþyngd.
Soðið tvær matskeiðar af hunangi og tvær teskeiðar af kanil í einum bolla af vatni og daglega drukkið á fastandi maga hálftíma fyrir morgunverð og einnig á kvöldin. Þetta getur létt feitt fólk þar sem það kemur í veg fyrir að fita safnist á líkamann. Þetta getur haft áhrif jafnvel þó borðað sé töluvert kaloríumagn.
Heyrnartap.
Hunang og kanill í jafnstórum skömmtum sem tekið er inn að morgni og kvöldi skerpir heyrnina.
Krabbamein.
Niðurstöður rannsókna í Japan og Ástralíu hafa leitt í ljós að maga- og beinkrabbamein á háu stigi hefur gengið til baka með góðum árangri. Sjúklingar sem þjást af slíku krabbameini ættu að taka inn eina matskeið af hunangi og eina teskeið af kanil þrisvar á dag í einn mánuð.