• Þjónusta
    • Hómópatía
    • C.O.R.E. Inergetix
    • Fæðuóþol
    • Tímapantanir
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
    • Vítamín og bætiefni
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tímapantanir
    • Tenglar
    • Heilsustöðin Fold
  • English Material
  • Hafðu samband
Increase Font Size Reset Font Size Decrease Font Size

Fæðuóþolsmælingar

Fæðuóþolsmælingar og fleira

(Bio-Energetic aðferð)


VegaTest Expert er viðurkennt þýskt tæki sem hefur verið notað hér á landi til margra ára, með góðum árangri.  Það var þróað af þýskum lækni Dr. Reinhold Voll, MD í Þýskalandi.  Vega vél birtist fyrst árið 1978, og hefur tekið töluverðum breytingum og verið í stöðugri þróun síðan.  Framleiðandi VEGA Grieshaber af Schiltach, í Þýskalandi.


Virkni tækisins byggir á  samruna alda gamallar kínverska læknisþekkingar, hómópatíu, orkulíffræði og vestrænnar tækni.  Þetta er eitt af þeim tækjum sem virkar á sviði Bio-energetic Regulatory Medicine (BER Medicine).  Það byggist á mælingum með rafleiðni milli rafskauta sem senda 0.87 volt í jákvæða póla.  Meðferðir eru framkvæmdar með vissu segulsviði en raf- og segulsegulsvið eru ekki óháð hvort öðru, heldur nátengd öðru, það er að breytingar á öðru veldur breytingum á hinu. Því er eðlilegt að tala um rafsegulsvið


Mæling er einföld og sársaukalaus og er framkvæmd eins og hér segir:     Viðskiptavinurinn heldur á rafskauti í annarri hendi og meðferðaraðila notar nema á tiltekinn stað á hinni höndinni eða á fæti sem myndar mælanlega hringrás.  Lestur er gerður á mjög lágum rafmagns titringi innan frá líkamanum og miðað við tíðni í hringrás tækisins.  Engar nálar eru notaðar.    Ef skráður lestur sýnir frávik frá eðlilegum lestri, getur það bent til ójafnvægis eða ofnæmis.


Með VegaTest Expert er hægt að mæla fæðuóþol, óþol við ýmsu í umhverfinu, eins og t.d. frjóofnæmi, dýraofnæmi og ýmsu fleiru.  Einnig er hægt að mæla hvort ýmis vandamál séu af völdum skorts á vítamínum eða bætiefnum.  Einnig ýmislegt varðandi líkamlegt ástand og heilbrigði eins og t.d.  sveppasýkingar (candída) o.fl.


Fæðuóþol og fæðuofnæmi er ekki það sama.  Fæðuofnæmi er mun alvarlegra og vekur mun sterkari viðbrögð líkamans,  svo sem öndunarerfiðleikum og öðrum ofnæmisviðbrögðum.  Fæðuóþol er aftur á móti viðbrögð líkamans við viðkomandi fæðu á þeim tíma sem mælingin fer fram.  Þetta gæti hafa verið viðvarandi ástand um skemmri eða lengri tíma og farið að hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu.  Meltingarvegur hefur ótrúlega stórt hlutverk í líkamsstarfsemi okkar og með því að hlúa að honum, hjálpar það svo mörgu öðru varðandi almenna heilsu og vellíðan.


Samvinna viðkomandi einstaklings og hómópata getur skipt  sköpum við að ná árangri til að öðlast bata.  Þegar um fæðuóþol er að ræða, er hómópatísk meðferð mun fljótvirkari og áhrifaríkari ef einstaklingur heldur sig á sama tíma frá þeim fæðutegundum sem gerir honum ekki gott.  Er þá í flestu tilvikum hægt að gera líkamanum fært um að þola aftur flest af því sem hann þoldi ekki á meðan ójafnvægi var á  líkamsstarfseminni.

 
Þjónustan
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • Fæðuóþolsmælingar
  • Tímapantanir
  • --------------------------
  • Sigrún Árnadóttir
  • Hafðu samband
Leita
Nýjustu innlegg
  • Túrverkir / Tíðaþrautir
  • Breytingaskeið / Hitakóf
  • Sprungnar hendur og fingurgómar
  • Hunang og kanill.
  • Góð heilsa.
  • Hægðatregða / Latur ristill
  • Eplaedik
  • Bólur
  • ESSIAC / Tea of Life
  • Frunsur / áblástur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Webdesign Tirol designed by pc-didi.