Sigrún Árnadóttir
Hómópati LCPH, Skráður græðari
Ég nam hómópatíu við The College of Practical Homoeopathy, í Bretlandi, 2002-2006, og hef starfað sem
hómópati síðan.
Auk hefðbundinnar hómópatíu hef ég tekið í notkun tæki sem bjóða upp á ýmsar mælingar og meðferðir sem hjálpa til við að gera hómópatískar meðferðir skilvirkari og fljótvirkari.
Ég hef sótt námskeið á ýmsum sviðum tengdum mínu fagi, flutt fyrirlestra og skrifað greinar á eigin vegum og í samstarfi við aðra hómópata.
Ég er félagi í Organon fagfélagi hómópata og er skráður græðari í Bandalagi íslenskra græðara (BIG)
Bæði á meðan ég var í námi og eftir það hefur viðast að mér margskonar efni, sem hefur vakið áhuga minn. Margt af þeim fróðleik hef ég áhuga á að miðla hér á þessarri heimasíðu en honum er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafa fagfólks í heilbrigðisþjónustu