Þjónusta
Sigrún ÁrnadóttirHómópati LCPH, Skráður græðariSigrún nam hómópatíu við The College of Practical Homoeopathy, í Bretlandi, 2002-2006, og hefur starfað sem hómópati síðan. |
TímapantanirHægt er að senda tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.eða hringja í síma 863 6848vinsamlega látið GSM-símanúmer fylgja ef óskað er eftir tíma gegnum netfang.
Ef ekki er svarað strax í símann, þá er ástæðan sú að ég svara ekki meðan einhver er hjá mér, en ég hringi til baka strax þegar ég get. Einnig svara ég tölvupósti um leið og mér er unnt. Meðferðir vegna bráðatilfella taka yfirleitt ekki nema 30 - 60 mínútur í fyrsta tíma, en aðrar meðferðir taka mun lengri tíma. Þar sem hómópatían lítur á einstaklinginn sem eina heild (andlega og líkamlega), þá getur verið mjög umfangsmikið að fá sem bestu heildarmynd af einkennum og einstaklingi með það í huga að átta sig á hvernig hægt er að aðstoða viðkomandi á besta mögulega hátt. Fyrsti tíminn er ávallt lengstur og ef um mælingar og meðferð er að ræða á sama tíma gæti sá tími verið allt frá 120 til 190 mínútur. Þetta hefur reynst mér einna best ef árangurinn á að verða sem næst væntingum. Eftirfylgni fer svo eftir hverjum einstakling fyrir sig, en þá er hver tími mun styttri. Þeir sem búa úti á landi geta verið í eftirfylgni þannig að viðtöl fara fram með símtali eða með vefpósti og remedíur sendar bréflega með íslandspósti. Þetta fyrirkomulag hefur borið góðan árangur og gert einstaklingum kleift að nýta sér þjónustu hómópata hvar sem er á landinu. Fæðuóþolsmælingar
C .O. R .E. Inergetix
|
- Hómópatía
- C.O.R.E. Inergetix
- Fæðuóþolsmælingar
- Tímapantanir
- --------------------------
- Sigrún Árnadóttir
- Hafðu samband
VegaTest Expert er viðurkennt þýskt tæki sem hefur verið notað hér á landi til margra ára, með góðum árangri. Með VegaTest Expert er hægt að mæla fæðuóþol og óþol við ýmsu í umhverfinu, eins og t.d. frjóofnæmi, dýraofnæmi og ýmsu fleiru.
C .O. R .E. meðferðartækið vinnur með líkamann á svipuðum grunnreglum og hómópatía. Byggist virkni þessarar vélar á orkulíffræði, lífsorku og raf-fyrirbærum lífverunnar. 